Hermann Hreiðarsson gengst á morgun undir aðgerð á öxl og líkast til spilar Eyjamaðurinn sterki ekki meira með á tímabilinu. Hermann var lánaður til Coventry frá Portsmouth í síðasta mánuði og í öðrum leik sínum með liðinu, gegn Blackpool, varð hann fyrir meiðslum á síðustu mínútu leiksins.