Krafa um breytingu á niðurgreiðslu til dagforeldra
Þetta bréf er skrifað fyrir hönd foreldra sem eiga börn fædd 2011. Við mæðurnar erum saman í „mömmuhitting“ þar sem bæði leikskóla- og dagforeldramál eru mikið rædd ásamt ýmsu öðru. Okkur finnst að það sé ýmislegt sem megi laga í þessum málum og þá aðallega finnst okkur kominn tími til að endurskoða niðurgreiðslu til dagforeldra hér í bæ.