Kynnum með stolti nýja og endurbætta heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Takmarkið með nýju síðunni er að hún sé notendavæn og aðlaðandi, svo allir þeir sem þurfi á þjónustu Vestmannaeyjabæjar að halda geti fundið hana með lítilli fyrirhöfn. Takmark Vestmannaeyjabæjar með síðunni er að hún verði ávallt uppfærð fljótt og vel þannig að þjónusta bæjarins sé til staðar hvenær sem á þarf að halda.