Í gærdag voru opnuð tilboð hjá Siglingastofnun í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar sumarið 2012. Tvö tilboð bárust. Frá Björgun uppá kr. 38.050,- og frá Íslenska gámafélaginu uppá kr. 83.930,-. Verði niðurstaðan sú að lægra tilboðinu verði tekið, er dýpkunarskipið Skandia væntanlega á förum.