Brúnin léttist á Eyjamönnum um leið og Herjólfur siglir í Landeyjahöfn. Það kom berlega í ljós á laugardaginn fyrir páska. Þá hafði Herjólfur siglt til Þorlákshafnar frá 7. nóvember að frátöldum fimm dögum í desember. Sigling í Þorlákshöfn er að mati flestra engin óskastaða enda tekur hún minnst þrjá klukkutíma og í vondum veðrum getur hún tekið allt að fimm til sex tíma en ekki nema hálftíma þegar siglt er í Landeyjahöfn.