„Við erum auðvitað fyrst og fremst ánægðir með að vera komnir að borðinu,“ sagði Gunnlaugur Grettisson, rekstararstjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum en eins og áður hefur komið fram átti Eimskip lægsta tilboð í rekstur ferjunnar við endurnýjað útboð. Gunnlaugur segir samt sem áður ekki búið að semja við Eimskip um áframhaldandi rekstur og enn eru nokkrir óvissuþættir.