Herjólfur siglir fyrri ferð til Þorlákshafnar í dag, mánudaginn 16. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar segir að vegna ölduhæðar og óvissu um dýpi í Landeyjahöfn, fari skipið í það minnsta fyrri ferð dagsins til Þorlákshafnar. Ákvörðun með síðari ferðina verði tekin um hádegi. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 8:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 11:45.