Matreiðslubókin Heilsuréttir fjölskyldunnar eftir Berglindi Sigmarsdóttur hefur slegið í gegn síðan hún kom út í apríl síðastliðnum. Samkvæmt nýjum bóksölulista er hún söluhæsta bók landsins það sem af er þessu ári en hún hefur selst í yfir fjögur þúsund eintökum.