Í kvöld klukkan 18:00 tekur ÍBV á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar á Hásteinsvelli. Stjarnan er í öðru sæti deildarinnar með 16 stig en ÍBV er í því þriðja með 15. Toppbaráttan hefur sjaldan verið jafn spennandi og nú enda munar aðeins þremur stigum á efsta liðinu, Þór/KA og Val, sem er í fimmta sæti. Sigur yrði því kærkominn fyrir bæði lið.