Hlynur Stefánsson, fyrrum knattspyrnukappi, hafði betur gegn Gunnari Friðfinnssyni í úrslitaleik Olísmótsins í snóker á föstudag. Olísmótið er sterkasta snókermót sem haldið er í Eyjum ár hvert en mótinu lýkur með úrslitaleik í einstaklingskeppni. Annars er mótið sveitakeppni á milli klúbbanna Akóges, Kiwanis og Oddfellow.