Tæpir fjórir mánuðir eru síðan markamaskínan frá Vestmannaeyjum, Margrét Lára Viðarsdóttir, lagðist undir hnífinn í Noregi í þeirri von að fá bót meina sinna. Þó að Margrét hafi lengi harkað af sér, og spilað jafnt með atvinnumannaliði og landsliðinu, þá hefur hún engu að síður glímt við flókin meiðsli í liðlega fimm ár. Margrét Lára hefur verið hér heima í endurhæfingu en heldur á næstunni utan til Svíþjóðar þar sem hún er á mála hjá Íslendingaliðinu Kristianstad.