Þröstur Johnsen, sem á og rekur Hótel Eyjar í Vestmannaeyjum, mun leiða lista Hægri grænna í Suðurkjördæmi í næstu Alþingiskosningum. Árni Johnsen, bróðir Þrastar og sitjandi þingmaður er í heiðurssæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og mun láta af þingmennsku í vor. Þröstur er þar með eini Eyjamaðurinn sem leiðir lista í Alþingiskosningunum 2013.