Á fundi stjórnar Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja nýlega var rætt um leiðir til að lengja ferðamannatímabilið í báða enda. Var því einkum velt upp hvað mætti gera til að fá hingað fleira fólk í byrjun tímabilsins. Þá kom upp sú hugmynd að beina athyglinni að lundanum, sem er þjóðartákn Vestmannaeyja. Hann kemur eftir miðjan apríl og sest upp. Var niðurstaðan að stefna að því að laugardagurinn 20. apríl verði helgaður lundanum.