Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og þá sérstaklega eftir miðja viku í tenglsum við óveðrið sem gekk yfir eyjarnar. Alls bárust lögreglu um 20 tilkynningar um foktjón og voru flest þeirra vegna klæðninga sem voru að losnaaf húsum. Helgin fór annars ágætlega fram og lítið um útköll á skemmtistaði bæjarins. Um miðja síðust viku kom maður á lögreglustöðina og lagði fram kæru vegna líkamsárásar sem hann kvaðst hafa orðið fyrir að kvöldi 2. mars sl.