Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson lét sjá sig á æfingu hjá Wetzlar í morgun. Hann hafði lýst því yfir að hann myndi gera það þó svo félagið væri búið að reka hann. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis mætti Kári framkvæmdastjóra félagsins, Björn Seipp, fyrir utan íþróttahöllina er hann ætlaði sér að ganga inn. Seipp meinaði Kára inngöngu í Höllina og tjáði honum að hann mætti ekki koma á æfinguna. Við svo búið hvarf Kári á braut.