Í kvöld, síðasta vetrardag, kl.20:30 mun verða blásið til mikillar Lúðraveislu í Bæjarleikhúsinu að Heiðarvegi. Þá munu Lúðrasveit Vestmannaeyja og Musical Adventures Concert Band, sem er lúðrasveit frá Alberta í Kanada, leiða saman hesta sína og spila þar ýmist sundur eða saman fjölbreyttan lagalista.