Nú þegar framboðsfrestur er runninn út er ljóst að hér í Suðurkjördæmi verða ellefu framboð til kosninga. Aðeins fjögur þeirra voru í boði fyrir fjórum árum. Þegar kosningalöggjöfinni var breytt árið 2000 má segja að gömlu valdaflokkarnir hafi lagt ýmsar hindranir fyrir óþægileg klofningsframboð. Um leið gerði fjórflokkurinn nýjum flokkum mun erfiðara um vik að komast að. Þeir byggðu upp lagabálk til að verja sín sæti.