Á lítilli Eyju þar sem íbúar hugsa stórt eru skipulags- og umhverfismál vandasamur málaflokkur. Vitund um mikilvægi þess að vernda náttúru og umhverfi fer sífellt vaxandi hér í Vestmannaeyjum eins og víðar. Á sama tíma fer eftirspurn eftir aðgengi að byggingalóðum fyrir ferðaþjónustu vaxandi. Það kann að vera vandasamt að láta þetta tvennt fara saman.