Grímur kokkur var meðal 28 umsækjenda sem hlutu styrki sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) auglýstu í apríl og er ætlað að efla atvinnulíf og nýsköpun á Suðurlandi. Um var að ræða peninga úr Vaxtarsamningi Suðurlands, Sóknaráætlun Suðurlands og fjármagn úr sameiginlegum sjóðum sveitarfélaganna sem áður var úthlutað af Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands.