David James sýndi af hverju hann var um árabil aðalmarkvörður enska landsliðsins í bikarleiknum á Ísafirði í gær. Í stöðunni 0:1 fengu Ísfirðingar hornspyrnu og danski miðvörðurinn Dennis Nielsen átti fastan skalla af stuttu færi, sem í flestum tilvikum hefði endaði í netinu. En James kastaði sér á boltann og bjargaði á elleftu stundu. Einhverjir vildu reyndar meina að boltinn hefði farið alla leið inn en erfitt er að sjá það á myndbandinu hér að neðan.