Golfmótið Ufsaskalli verður haldið í fimmta sinn á golfvellinum í Vestmannaeyjum á morgun, .laugardag. Mótið er styrktarmót og rennur allur ágóði mótsins í gott málefni í Eyjum en í fyrra keyptu aðstandendur mótsins heitan pott og gáfu Sambýlinu, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Eins og í öllum góðum golfmótum, er golfið ekki aðalatriðið, heldur skemmtunin.