Þessa daga minnumst við þess að 40 ár eru liðin frá goslokum. Við höldum hátíð. Það er fullkomlega eðlilegt. Við getum verið þakklát. Við vorum að mörgu leyti mjög heppin.
Mér er í fersku minni nóttin þegar gosið hófst. Þegar ég var vakinn af værum svefni og tilkynnt af yfirvegun að ég ætti að fara á fætur, það væri farið að gjósa. Ég var tíu ára og skyldi kannski ekki hvað það nákvæmlega merkti, en skynjaði að það voru ekki hamingjufréttir.