Veðurspá dagsins er ekki ýkja spennandi fyrir útiveru í tengslum við Goslokahátíðina en Veðurstofa Íslands spáir rigningu í allan dag og nokkuð stífri austan átt. Af þessum sökum hefur tveimur dagskrárliðum Goslokahátíðarinnar í dag verið frestað til morguns.