Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir aðstoð almennings í baráttunni við fíkniefni, sérstaklega nú í aðdraganda þjóðhátíðar. „Nú fer að nálgast Þjóðhátíð og því miður er það svo að fylgifiskur hátíðarinnar er aukin neysla fíkniefniefna. Lögreglan óskar eftir aðstoð almennings við að berjast við þennan vágest og hvetur fólk til að tilkynna til lögreglu ef það verður vart við sölu, dreifingu eða neyslu fíknifna. Hægt er að hringja nafnlaust í sjálvirkan símsvara lögreglu 800 5005.“ Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan.