David James skrifar reglulega pistla sem birtast á vefsvæði The Guardian. Í þetta sinn skrifar hann um áfanga sinn að ná 1000 leikjum en áður en ÍBV kom til sögunnar, þá leit allt út fyrir að hann næði ekki þessum merkilega áfanga. „Mig grunaði aldrei að ég myndi spila 1000. leikinn fyrir lið frá lítilli eyju, fyrir framan 1200 áhorfendur með skært ennisband, eins og tískan er hérna,“ skrifar James sem kemur einnig inn á lífið í Vestmannaeyjum í greininni.