Bísnessmaðurinn
Pétur átti eina dóttur sem hann elskaði mjög mikið. Pétur átti líka stórt og arðbært fyrirtæki. Pétri líkaði ekki allskostar vel við nýja tengdasoninn en fann líka að dóttir hans tók það nærri sér. Hann ákvað því að brjóta odd af oflæti sínu og taka unga manninn inn í fjölskylduna með stæl. Hann biður unga manninn að koma að máli við sig sem hann og gerir. �?ar tilkynnir Pétur honum að hann hafi tekið ákvörðun um að gefa honum helminginn af fyrirtækinu sínu til að sýna honum að hann sé raunverulega velkominn í fjölskylduna.
�?etta leist unga manninn afar vel á og tók fagnandi á móti gjöfinni. Pétur segir þá við hann að næsta morgun skuli hann mæta í verksmiðjuna og byrja að vinna þar og síðan sjái þeir til hvernig málin þróist. �?etta leist unga manninn hins vegar alls ekki á. �??�?að á ekki við �?� mig að vinna í verksmiðju, það er allt of mikill hávaði og svo er allt svo skítugt. Nei, þetta gengur ekki upp.�?�, segir hann.
Pétri var auðvitað brugðið en til að leysa málið segir hann við unga manninn að þetta sé ekkert mál. Hann skuli mæta næsta morgun niður á skrifstofuna sína og vinna þar með honum. �??Nei, það gengur heldur ekki upp sagði ungi maðurinn. �?g get ekki verið að loka mig inní litlu herbergi bak við lítið skrifborð. �?g get ekki unnið á skrifstofu, það er alveg klárt mál.�?�, segir hann.
Nú var farið að fjúka í Pétur enda viðbrögð unga mannsins honum alveg óskiljanleg. �??Hvað á ég þá að gera við þig, þú villt ekki vinna á skrifstofunni og ekki í verksmiðjunni. Hvað á ég eiginlega að gera þá.�?�, segir Pétur.
�?að er einfalt svaraði ungi maðurinn. �?g skal bara selja þér minn hluta af fyrirtækinu�?�..

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.