Kaflaskipt hjá ÍBV í sigri á Haukum
Kvennalið ÍBV fór langt með að tryggja sér heimaleikjarétt í úrslitakeppni Íslandsmótsins með því að leggja Hauka að velli í Eyjum. ÍBV er nú með þriggja stiga forystu á Gróttu, sem er í fimmta sæti en ÍBV er í því fjórða. ÍBV er hins vegar með jafn mörg stig og Fram, sem er í þriðja sæti en aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina og fjögur efstu liðin fá heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitanna. Fram og Grótta eigast einmitt við í næstu umferð en ÍBV leikur þá gegn �?ór/KA fyrir norðan. Í síðustu umferðinni tekur ÍBV svo á móti FH, Fram sækir Hauka heim og Grótta tekur á móti Stjörnunni.
Leikurinn í dag var vægast sagt mjög kaflaskiptur. Fyrri hálfleikur var mjög góður hjá ÍBV. Leikmenn fóru hreinlega á kostum gegn arfaslakri vörn Hauka enda skoraði ÍBV 22 mörk í fyrri hálfleik en fékk bara 14 á sig. Síðari hálfleikur var hins vegar á allt öðrum nótum því ekkert gekk upp í sókninni hjá ÍBV, Haukar höfðu stoppað í götin svo um munaði enda skoraði ÍBV aðeins sex mörk í seinni hálfleik. En það dugði til því Haukar skoruðu tólf og lokatölur urðu því 28:26.
Mörk ÍBV: Vera Lopes 11, Telma Amado 5, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Ester �?skarsdóttir 3, Arna �?yrí �?lafsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, �?órsteina Sigurbjörnsdóttir 1.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 19.

Nýjustu fréttir

Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.