Stig í kaflaskiptum leik
Karlalið ÍBV gerði jafntefli gegn Fram í leik liðanna í dag en leikurinn fór fram á gervigrasinu í Laugardal. �?hætt er að segja að leikurinn hafi verið leikur hinna tveggja hálfleika, þar sem Fram var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en ÍBV í þeim síðari. Með smá heppni hefðu Eyjamenn getað unnið leikinn en markvörður Framara varði m.a. meistaralega frábært skot Víðis �?orvarðarsonar seint í leiknum. Á móti má segja að Eyjamenn hafi verið stálheppnir að vera aðeins 1:0 undir í hálfleik enda fengu Framarar fjölmörg færi í fyrri hálfleik.
Eftir fyrri hálfleikinn hugsuðu eflaust margir að sumarið yrði langt og strembið hjá ÍBV því leikur liðsins olli miklum vonbrigðum. Varnarleikur liðsins, sem átti að vera sterkasta vopn ÍBV í sumar, virkaði engan veginn en stór skörð voru höggin í vörnina fyrir leikinn í dag þar sem báðir bakverðirnir, þeir Matt Garner og Arnór Eyvar �?lafsson gátu ekki spilað en í þeirra stað léku þeir Jón Ingason og �?skar Elías Zoega �?skarsson. Báðir stóðu þeir fyrir sínu, sérstaklega í síðari hálfleik en �?skar lagði m.a. upp jöfnunarmarkið fyrir Bjarna Gunnarsson. Markið var sérlega glæsilegt, flott fyrirgjöf frá hægri og Bjarni afgreiddi boltann á lofti og lagði hann út við fjærstöngina.
En stig á útivelli í fyrsta leik eru góð fyrirheit. Næsti leikur Eyjaliðsins verður á fimmtudaginn þegar ÍBV tekur á móti Stjörnunni klukkan 17:00.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.