Kaup Síldarvinnslunnar á Berg-Huginn dæmd ógild
Fyrr í dag var kveðin upp dómur í máli Vestmannaeyjabæjar gegn Q44 og Síldarvinnslunni þar sem Vestmannaeyjabær krafðist þess að ógiltur yrði með dómi samningur um kaup Síldarvinnslunar á öllum eignarhlutum Q44 í Bergi-Huginn ehf. sem á og gerir út togarana Bergey VE 544 og Vestmannaey VE 444 ásamt aflaheimildum. Dómari í málinu var Arnar �?ór Jónsson.
Dómsorðið er sem hér segir:
�??�?giltur er samningur um kaup stefnanda, Síldarvinnslunar hf., á öllum eignarhlutum í Bergi-Huginn ehf. af stefnda, Q44 ehf,. dagsettur í ágúst 2012. �?á er Síldarvinnslunni og Q44 gert að greiða Vestmannaeyjabæ 3.000.000 í málskostnað.�??
Vestmannaeyjabær fagnar þessari niðurstöðu og lítur á hana sem áfangasigur í baráttu íbúa sjávarútvegssveitarfélaga fyrir auknu atvinnuöryggi. Dómurinn staðfestir rétt sveitarfélaga þegar kemur að kaupum og sölu fiskiskipa og aflaheimilda sem sannarlega geta svipt íbúa atvinnu þeirra og sveitarfélögin tilverugrunni sínum.
Sveitarstjórnarfólk, þingmenn og embættismenn sveitarfélaga eru málsvarar íbúana og á þeim hvílir sú skylda að bregðast við þegar hagsmunir þeirra eru í hættu. Vestmannaeyjabær skorar því á þessa aðila að taka höndum saman í baráttu fyrir auknum rétti íbúa sjávarbyggða þegar kemur að atvinnuöryggi og sértækum skatti á atvinnulíf þeirra. Vestmannaeyjabær mun ekki láta sitt eftir liggja í þeirri baráttu.
Fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar
Elliði Vignisson
bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.