Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið enda fjöldi fólks í bænum í tilefni af Pæjumótinu. M.a. þurfti lögreglan í tvígang að opna bifreiðar þar sem lyklar höfðu verið læstir inni í þeim. Í öðru tilvikinu var barn læst inni í bifreið en allt leystist þetta farsællega og engum varð meint af.
Rólegt var í kringum veitingastaði bæjarins og engin útköll á staðina sem vert er að greina frá. �?ó var, að vanda, eitthvað um að lögreglan þufti að aðstoða fólk til síns heima sökum ölvunarástands þess.
Tvær kærur liggja fyrir vegna umferlagabrota eftir liðna viku og var í öðru tilvikinu um að ræða stöðvunarskyldubrot en í hinu var um að ræða akstur gegn rauðu ljósi.