Rúmlega 16 milljarða aflaverðmæti landað í Eyjum á síðasta ári
Reykjavíkurhöfn var sú höfn þar sem mestum aflaverðmætum var landað á síðasta ári eða alls 25,3 milljörðum kr. Næst í röðinni komu Vestmannaeyjar með rúma 16 milljarða og Neskaupstaður með 14,4 milljarða. Sú höfn þar sem minnstu verðmæti var landað og rekur því lestina er Haukabergsvaðall með aflaverðmæti upp á 54 þúsund krónur. �?arna var landað grásleppu og meðafla hennar.
Hlutur Reykjavíkur hefur farið lítillega minnkandi á undanförnum árum. Til að mynda var hann 16,8% eða rúmir 29 milljarðar árið 2011 en fór niður í 14,9% eða 25,3 milljarða í fyrra. �?etta er samdráttur uppá 3,8 milljarða. Hins vegar jukust aflaverðmætin um rúma 1,8 milljarða á Ísafirði og 3,1 milljarð á Siglufirði.
�?egar horft er til landsvæða var mestum aflaverðmætum landað á Austurlandi eða 23,2% af heildaraflaverðmætunum sem skráð voru í íslenskum höfnum samkvæmt vigtar- og ráðstöfunarskýrslum. Alls voru þetta rúmir 39,3 milljarðar króna. Næst koma hafnirnar á höfuðborgarsvæðinu með rúma 31,4 milljarða króna (18,6%).
(tekið af vef Fiskistofu)

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.