Á þeim rétt rúmlega mánuði sem liðinn er frá opnun Eldheima, hafa rúmlega 7000 gestir heimsótt safnið. Í eldheimum er eldgosinu 1973 gerð góð skil í máli og myndum en húsið við Gerðisbraut 10 en var grafið upp og er nú miðpunktur safnsins. Kristín Jóhannsdóttir, safnvörður Eldheima sagði í stuttu samtali við Eyjafréttir að aðsókn hefði farið fram úr björtustu vonum aðstandenda Eldheima.