Litaskiptur bær á Goslokunum
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Um næstu helgi verður hin árlega Goslokahátíð haldin í Eyjum en í ár er 41 ár síðan gosinu lauk. Goslokanefnd fékk í aðdraganda hátíðarinnar fjölmargar áskoranir um að taka upp litaskiptingu hverfa að nýju og hefur nú ákveðið að verða við þessum áskorunum, að því að fram kemur á facebooksíðu nefndarinnar. Liti hverfanna má sjá hér að neðan.
Vesturbær til og með Illugagötu skreytir með appelsínugulu og svörtu.
Frá Illugagötu að húsum er standa við Kirkjuveg og upp Strembugötu, ásamt miðbæ verði skreytt með gulu og svörtu.
Austurbær austan Kirkjuvegar eru með rautt og svart.
�??Hyllt verða skemmtilega og smekklega skreytt hús í hverju hverfi fyrir sig en besta húsið í bænum að mati dómnefndar verðlaunað. Skreytingarnar setja skemmtilegan svip á hátíðina og í veðurblíðunni sem spáin gerir ráð fyrir næstu helgi, má gera ráð fyrir að skreytingarnar verði enn meira áberandi. Er það von goslokanefndar að sem flestir skreyti umhverfið í kringum sig,�?? segir á síðunni.
Dagskrá Goslokahátíðar 2014
Fimmtudagur
Eymundsson
Kl. 14-18.00
Spákonan Sunna Árnadóttir spáir í bolla og spil fyrir gesti og gangandi gegn vægu gosgjaldi.
Pippkróin
Kl. 17.00
Opnun myndlistarsýningar Antons Borosak, Arnars Helga Garðarssonar, Eysteins Eyvindssonar og Magnúsar Kára Ágústssonar.
Hraunhitaveitan
Kl. 18.00
Ganga upp að gíg Eldfells með Svavari Steingrímssyni.
Vinaminni
Kl. 21.00
Lifandi tónlist á Vinaminni.
Höllin
Kl. 21.30 (húsið opnar kl. 20.30)
Eyjakvöld Blítt og létt hópurinn, aðgangseyrir.
Föstudagur
Ráðhús Vestmannaeyja
Kl. 9.00
Fánar goslokahátíðar dregnir að húni.
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Kl. 10.00
Volcano open �?? ræst út kl. 10.00 og kl. 17.00. Keppendur mæti í skála klukkustund fyrir ræsingu.
KFUM & K húsið
Kl. 13.00- 17.00
Félagar úr Myndlistarfélagi Vestmannaeyja sýna myndir sínar.
Efri hæð Miðstöðvarinnar
Kl. 15.00
Sigurdís Harpa Arnarsdóttir opnar myndlistarsýningu sína, 1994-2014. �?órarinn �?lason og félagar leika létt lög.
Slippurinn
Kl. 16.00
Týsgallerí opnar sýningu á verkum Heimis Björgúlfssonar. Glæsilegur Goslokaseðill Slippsins tekur gildi kl 17:30.
Hús Taflfélagsins, Heiðarvegur 9
Kl. 17.00
Opnun myndlistarsýningar Sigurfinns Sigurfinnssonar.
Gallerý Tyrkja Gudda, Heiðarvegi 9
Kl. 17.00
Tónlistaratriði á handverksmarkaði, Daníel Frans og Bjarki leika á trompet og gítar.
Áshamarstún
Kl. 17.30
Ultimate frisbee mót. Aldurstakmark 14 ára, fimm í liði. Skráning á bragimagg@gmail.com.
Eldheimar
Kl. 18.00
Tískusýning Berglindar �?marsdóttur klæðskera.
Stakkagerðistún
Kl. 18.00
Leikhópurinn Lotta sýnir Gilitrutt á Stakkagerðistúni. Aðgangseyrir kr. 1.900,-.
Tryggingamiðstöðin
Kl. 19.30
Berglind �?marsdóttir kynnir hönnun sína. Léttar veitingar í boði.
Höllin
Kl. 19.30
Goslokahlaðborð Einsa kalda �??Hafið við Eyjar�?�. Borðapantanir í síma 698-2572.
Hvítasunnukirkjan/Gamla Höllin
Kl. 21.00
Hljómsveitin Logar fagna 50 ára afmæli sínu í ár. �?eir halda tónleika og létta sögustund í gömlu Höllinni. Aðgangur er ókeypis í boði Vífilfells.
Háaloftið
Kl. 22.00
Tónleikar með Kaleo, aðgangseyrir 2.500 kr.
Kaffi Varmó
Kl. 23.00
Bræðurnir Kiddi og Sigvaldi frá Selfossi verða með harmonikku og gítar. Fjöldasöngur.
Kaffi kró
Kl. 23.30
Hið árlega hlöðuball. Kapteinn Morgan og gestir leika fyrir dansi.
Lundinn
Kl. 00.00
Bandið �??Blátt áfram�?� leikur fyrir dansi.
Eldfell
Kl. 00.00
,,Logar í austri�?� – bæjarbúar hvattir til að líta að Eldfelli.
Volcano Cafe
Kl. 00.00
Dj Atli spilar fyrir mannskapinn og Fannar, Dagur og Hjálmar verða með skemmtilegar uppákomur.
Laugardagur
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Kl. 8.00
Volcano Open, ræst út kl. 8.00 og 13.30. Keppendur mæti í skála klukkustund fyrir ræsingu.
Friðarhafnarskýlið
Kl. 11.30
Ganga á Heimaklett í umsjá Bibba og Björgó, spurningakeppni á toppnum og verðlaun. Mæting við Friðarhafnarskýlið.
Nausthamarsbryggja
Kl. 12.30-14.00
Bryggjuveiðimót Sjóve fyrir börn á öllum aldri, boðið upp á sannkallaða fjölskylduveiðistund! Allir þátttakendur fá glaðning og þátttökuverðlaun.
Helgafellsvöllur
Kl. 14.00
KFS- Augnablik
Bárustígur
Kl. 14.00 �?? 16.00
Sparisjóðsdagurinn. Hefðbundin fjölskylduhátíð, tónlist, leikir, grill, andlitsmálning ofl.
Skansinn
Kl. 15.00
Hafnar- og húsaganga með Arnari Sigurmundssyni. Mæting á Skansinn. Stiklað á stóru í sögu hafnarmannvirkja og fyrirtækja í Eyjum í heila öld, endað með heimsókn á Sjóminjasafn �?órðar Rafns Sigurðssonar.
Gallerý Tyrkja Gudda, Heiðarvegi 9
Kl. 16.00
Helgi Tórshamar og Sævar Helgi úr hljómsveitinni Afrek leika létt lög, þar á meðal goslokalag ársins 2014, �?skuslóð.
Eldheimar
Kl. 16.00
Bjartmar Guðlaugsson leikur tónlist, á rómantískum nótum.
Skipasandur
Kl. 20.30-22.30
Unglinga- og barnakvöldskemmtun í Coca Cola tjaldinu. Meðal atriða:
– Töframaðurinn Einar Mikael sýnir ótrúleg töfrabrögð og sjónhverfingar.
– Villi og Sveppi kæta og gleðja unga sem eldri
-�?var vísindamaður gerir skemmtilegrar tilraunir
-Leikfélagið sprellar á svæðinu, hoppukastalar ofl.
Slippurinn
Kl. 22.00
�?tigrill og veitingasala á Skipasandi (bakvið Slippinn).
Kaffi Varmó
Kl. 23.00
K.J trúbador (áður þekktur sem Hermann Ingi junior) leikur létt lög.
Skipasandur
Kl. 23.30
Stuð í Pippkrónni, í nýjum króm og Coca Cola tjaldinu á Skipasandi fram eftir nóttu (Kapteinn Morgan, Brimnes, Eymenn, Vangaveltur, Dans á rósum, Logar, Árni Johnsen og ýmsir gestir).
Prófasturinn
Kl. 00.00
Bandið �??Blátt áfram�?� leikur fyrir dansi.
Volcano Cafe
Kl. 00.00
Dj Atli spilar fyrir mannskapinn og Fannar, Dagur og Hjálmar verða með skemmtilegar uppákomur.
Sunnudagur
Landakirkja
Kl. 11.00
Göngumessa frá Landakirkju að gíg Eldfells og að Stafkirkju. Samkirkjuleg guðsþjónusta þar sem félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika. Í lok messu mun sóknarnefnd bjóða í kaffi á lóð Stafkirkjunnar.
Háaloftið
Kl. 21.00
Tónleikar með KK, aðgangseyrir 2.500 kr.
Sýningartímar listsýninga:
Kaffi Kró: Ýmir Grönvald sýnir verk sín. Opið er frá 11.00 alla helgina.
Hús Taflfélagsins Heiðarvegi 9
Sigurfinnur Sigurfinnsson. Opið föstudag frá 17.00-22.00 og laugardag og sunnudag frá 14.00-20.00.
Miðstöðin
Sigurdís Harpa Arnarsdóttir: Opið laugardag og sunnudag frá 13.00-18.00.
Pippkróin
Myndlistarsýning Antons Borosak, Arnars Helga Garðarssonar, Eysteins Eyvindssonar og Magnúsar Kára Ágústssonar. Opin föstudag og laugardag frá 14.00-18.00.
KFUM & K húsið
Félagar úr Myndlistarfélagi Vestmannaeyja sýna myndir sínar. Laugardagur og sunnudagur frá 13.00-17.00.
Einarsstofa
Sýningarnar �??Vorið 2014 í Vestmannaeyjum�?? og �??Saga Eyjafrétta í 40 ár�?? í tilefni stórafmælis blaðsins. Opið 11.00-17.00 alla daga.
Sagnheimar
Kvikmyndin �??Gosið og uppbyggingin í Eyjum�?? eftir Heiðar Marteinsson. Opið 11.00-17.00 alla daga.
Aðrir endurteknir viðburðir
Eymundsson
Spákonan Sunna Árnadóttir spáir í bolla og spil fyrir gesti og gangandi gegn vægu gosgjaldi. Föstudag 14.00 �?? 18.00 og laugardag 14.00 �?? 17.00.
Á Breiðabakka
Litboltavöllur opinn frá 12.00-16.00 laugardag og sunnudag. Aðgangseyrir 4500 kr., aldurstakmark 15 ára.
Skráning í bátana
Verið er að taka saman hverjir fóru með hvaða bát gosnóttina 1973. Skráning fer fram í Sagnheimum og á internetinu á vefslóðinni 1973ibatana.blogspot.com.

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.