Vikan var með rólegra móti þrátt fyrir að fjöldi manns væri í bænum enda Shellmót-ÍBV haldið með öllum þeim fjölda gesta sem fylgir þeim liðum sem sækja Eyjarnar heim. Fór mótið að vanda vel fram og engin teljandi útköll í tengslum við það. Helgin fór fram með ágætum og fá útköll á öldurhús bæjarins en eitthvað var þó um að lögreglan þurfti, eins og svo oft áður, að aðstoða gesti húsana til síns heima sökum ölvunarástands þeirra.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið. Í öðru tilvikinu var um að ræða óhapp á gatnamótum Kirkjuvegar og Illugagötu þar sem bifreið var ekið inn á gatnamótin af Illugagötu og í veg fyrir bifreið sem ekið var eftir Kirkjuvegi. Í hinu tilvikinu var um að ræða óhapp þar sem bifreið var ekið afturábak og lenti á kyrrstæðri bifreið. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum en eitthvað tjón varð á ökutækjum.
Alls liggja fyrir átta kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna og er um að ræða 6 kærur vegna ólöglegrar lagningar ökutækja, ein fyrir stöðvunarskyldubrot og ein þar sem ökumaður pallbíls var kærður fyrir að aka með farþega á pallinum en alls voru 13 ungir drengir á palli bifreiðarinnar. Gaf ökumaðurinn þá skýringu að hann væri að fara með drengina til leiks í Shellmóti ÍBV, en þeir væru að verða of seinir í leikinn.
Lögreglan vill beina því til foreldra og forráðamanna barna, í tilefni af Goslokahátíð um næstu helgi, að virða útivistareglurnar. Til upprifjunar þá eru útivistareglurnar eftirfarandi; börn tólf ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22:00 og ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir miðnætti. �?ó mega börn vera í fylgd með fullorðnum eftir að útivistatíma lýkur en gera verður þá kröfu að þeir sem fylgja börnunum séu allsgáðir.