Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs ÍBV segir að liðið sé að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun í Pepsídeildinni. �??Í 8 síðustu leikjum hefur ÍBV unnið 4 leiki, gert 3 jafntefli og tapað 1 leik. Í þremur af þessum leikjum sem hafa ekki unnist var liðið með forystu þegar nokkrar mínútur voru eftir eða jafnvel komið fram í uppbótartíma. Liðið er að spila miklu betur en í byrjun móts,�?? segir þjálfarinn í pistli sem hann skrifar á stuðningsmannasíðu ÍBV liðsins.
Mikilvægir leikir framundan
�??Liðið er núna komið í undanúrslit bikarsins í fyrsta skipti síðan 2011. Leikmennirnir hafa lagt hart að sér því það hefur ekki verið auðvelt að rífa sig upp eins og umtalið var orðið að leikmenn væru ekki að leggja sig fram, að það vantaði neista í liðið, að ÍBV liðið væri það lélegasta í mörg ár og að það þyrfti að reka þjálfarann o.s.frv. En í mótlæti sést úr hverju menn eru gerðir. Strákarnir hafa sýnt karakter og eru núna að vinna leiki á lokamínútunum í stað þess að tapa þeim. �?eir eiga skilið hrós fyrir það ekkert síður en knattspyrnuráðið og stjórnendur félagsins, við höfum staðið öll saman ásamt ykkur dyggustu stuðningsmönnum liðsins. Mig langar að þakka ykkur stuðningsmönnum sem héldu tryggð við liðið okkar þegar gekk erfiðlega. Liðið okkar er ennþá að vinna sig út úr erfiðri stöðu í deildinni og til þess þurfum við stuðning frá öllum stuðningsmönnum ÍBV. Framundan eru tveir mikilvægir heimaleikir gegn Fjölni og Fram. Jafnframt er gríðarlega spennandi undanúrslitaleikur í bikar framundan gegn KR á Hásteinsvelli skömmu fyrir verslunarmannahelgi. �?g vonast til að sjá ykkur öll á vellinum í þessum leikjum að styðja strákana okkar.
Sýnum karakter
Sigurður segir jafnframt að fyrir hvern einasta leik undanfarið hafi þjálfararnir hengt upp blað í búningsklefanum með eftirfarandi tilvitnun: �??Be more concerned with your character than your reputation. Your character is what you really are while your reputation is merely what others think you are.�?? �?etta er það síðasta sem leikmenn okkar lesa áður en þeir fara út á völlinn að spila fyrir ÍBV. Sýnum öll karakter og sjáumst á vellinum, styðjum við bakið á liðinu okkar í blíðu og stríðu. Áfram ÍBV!�?? skrifar Sigurður Ragnar.