Graðfoli laus suður á Eyju
Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins um liðna helgi. Eitthvað var um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum án þess þó að teljandi vandræði hafi hlotist af því.
Í vikunni var lögð fram kæra vegna lausagögnu graðfola suður á Eyju en folinn mun iðulega vera utan girðingar.
�?rjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku og var í öllum tilvikum um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á fólki.
Einungis ein kæra liggur fyrir vegna brota á umferðarlögum en um var að ræða óhæfilegan frágang á farmi á vörubifreið með þeim afleiðingum að hluta af farminum féll af palli bifreiðarinnar og á aðrar bifreiðar og olli skemmdum á þeim.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.