Á þriðja þúsund fermetrar hafa nú verið tyrfðir við Eldheima. En er mikill frágangur eftir enda lóðin stór og hönnun útisvæðis, ásamt bílastæðum, ekkert síðri en húsið og safnið sjálft.
Fyrir nokkru síðan var torf sett niður sem hafði of lengi beðið upprúllað. �?að var því litlaust og átti ljósmyndarinn erfitt með að sjá hvort peyjarnir voru almennt að snúa torfinu rétt. En sem betur fer er gras fljótt að taka við sér meðan það rignir svona hressilega.
�?rátt fyrir að safnið sé ekki með öllu tilbúið hefur það enginn áhrif á aðsóknina sem brátt nálagast 10.000 manns.
#okkarheimaey