Lesandi Eyjafrétta bar sig illa í síðustu viku. Sá hafði reynt að kaupa miða fyrir eiginkonu sína á fimmtudag fyrir þjóðhátíð og aftur heim daginn eftir. �?etta gerði hann í síðustu viku en fékk þau svör að hann þyrfti að hafa samband við ÍBV-íþróttafélag til að fá far með Herjólfi á föstudeginum. Hjá ÍBV var honum bent á að fara á Dalurinn.is og kanna hvað væri laust. �?ar var hins vegar ekki hægt að fá miða í Herjólf nema kaupa miða á þjóðhátíð líka. Eftir að hafa rætt aftur við starfsmenn Herjólfs kom í ljós að laust var fyrir bílinn til Eyja klukkan 10 á laugardeginum en þá var ekki laust fyrir eiginkonuna, nema þá í gegnum ÍBV. �??�?etta endaði svo með því að ég keypti far fyrir hana kl: 23:00 á föstudagskvöldið ásamt miða í Dalinn, samtals krónur 18.160 kr,�?? skrifaði lesandinn í orðsendingu til ritstjórnar.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs segir að eins og í fyrra, kaupi ÍBV-íþróttafélag 2/3 hluta allra miða í Herjólf dagana fyrir og eftir þjóðhátíð. �??Restina af miðunum seljum við beint. �?etta fyrirkomulag hefur gengið mjög vel að okkar mati en svo koma upp tilfelli þar sem þetta hentar illa. Við því er því miður lítið hægt að segja annað en það að bæði við og �?jóðhátíðarnefnd reynum eins og hægt er að aðstoða fólk í svona tilfellum en þegar stutt er í hátíðina er þetta því miður orðið ansi erfitt.�??
Persónuskilríki nauðsynleg
Gunnlaugur vildi jafnframt benda þeim sem keyptu miða í gegnum Dalurinn.is og hjá Herjólfi að hafa meðferðis persónuskilríki þegar komið er í Herjólf. �??Allir miðar sem eru keyptir á Dalurinn.is eru t.d. skráðir á nafn og kennitölu viðkomandi og því mikilvægt að hafa persónuskilríki meðferðis.�??