Lögreglan í Vestmannaeyjum fær á ári hverju mikið af óskilamunum eftir þjóðhátíð. Reyndar var heldur minna um óskilamuni í ár, þrátt fyrir að þjóðhátíð nú hafi verið sú fjölmennasta frá upphafi. Lögreglan birtir skemmtilega færslu á facebook síðu sinni í dag, þar sem auglýst er eftir eiganda tjaldsins og því bætt við að eigandinn geti nálgast tjaldið sjálfur. Vandinn er hins vegar sá að tjaldið er lengst upp í bergi Háarinnar og varla möguleiki að nálgast það. Færsluna má sjá hér að neðan.