Knattspyrnuráð biður Arnór afsökunar á ummælum
Í ljósi fréttar á íþróttamiðlinum www.fotbolti.net vill knattspyrnuráð ÍBV ítreka þakklæti sitt til Arnórs Eyvars �?lafssonar fyrir hans framlag til knattspyrnunnar í Vestmannaeyjum. Arnór Eyvar er drengur góður og á allt gott skilið frá ÍBV. �?rátt fyrir að Eyjamenn séu almennt vonsviknir með þá niðurstöðu að missa Arnór Eyvar úr sínum röðum þá eru ástæður vistaskipta hans allt aðrar en peningalegs eðlis.
Arnór Eyvar taldi sig ekki hafa tök á að leika lengur með ÍBV sökum vinnu sinnar og annarra ástæðna.
Knattspyrnuráð ÍBV biður Arnór Eyvar innilegrar afsökunar á þeim ummælum sem voru birt voru í gærkvöldi í kjölfar samtals fréttamanns við varaformann ráðsins. �?au ummæli eru engan veginn skoðun ráðsins og harmar ráðið að þau hafi verið sett fram.
Knattspyrnuráð ÍBV þakkar enn og aftur Arnóri Eyvar fyrir hans góða framlag til ÍBV og óskar honum góðs gengis á nýjum vígstöðvum.
f.h. knattspyrnuráðs ÍBV
�?skar �?rn �?lafsson

Nýjustu fréttir

Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.