Er komið að endalokum?
Siglunes SI 70 sem áður hét Danski Pétur VE 423, hefur legið við bryggju á Siglufirði frá því um kvótaáramótin síðustu. Rammi hf var með skipið á leigu til rækjuveiða en endurnýjaði ekki samning um áframhaldandi leigu og því hefur Siglunes SI bæst í hóp bryggjublóma landsins .
Margir hafa velt því fyrir sér hver framtíð þessa skips verður, en skipið var smíðað árið 1971 hjá �?orgeir & Ellert á Akranesi fyrir Emil Andersen útgerðarmann í Eyjum. Danski Pétur var upphaflega málaður fjólublár og þótti mörgum það sérkennilegur litur á bát. Fyrir átti Emil Júlíu VE 123. �?tgerð Emils var mikil fyrirmyndar útgerð og snyrtimennska Emils var slík að eftir var tekið.
Emil Marten Andersen var fæddur f. 31.07.1917, Hann lést 17.03. 1995. �?ann 20. febrúar 1971 gaf eiginkona Emils, �?órdís Jóelsdóttir (f. 15.02. 1916, d. 17.07. 1996), skipinu nafnið Danski Pétur. Nafnið var gælunafn föður Emils, Hans Peter Andersen, sem jafnan var kallaður Danski Pétur í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.