Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands ásamt framkvæmdastjórn hefur ákveðið að gengið verði til kaupa á nýju tölvusneiðmyndatæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Kaupin á nýja tækinu eru unnin í samvinnu við konur í Kvenfélaginu Líkn í Vestmannaeyjum sem hafa af miklum myndarskap og þrautseigju safnað fé til kaupa á tækinu. Hafa Líknarkonur safnað 25,9 milljónum króna sem renna upp í kaupin.
Eldra tölvusneiðmyndtæki í Vestmannaeyjum hefur verið ónothæft síðast liðið ár og ekki hefur því verið kostur á því að greina ýmis einkenni og sjúkdóma á staðnum. Af því hefur hlotist viðbótarkostnaður við sjúkraflug í einhverjum tilfellum.