Landeyjahöfn var tekin í notkun 21. júlí árið 2010. Frá þeim degi til 31. desember 2014, hefur Herjólfur siglt 4.146 ferðir í Landeyjahöfn og 1.142 ferðir til �?orlákshafnar.
Meðalfarþegafjöldinn þegar siglt er til �?orlákshafnar eru 134 farþegar en þegar siglt er til Landeyjahafnar er meðalfarþegarfjöldinn 236. �?etta kemur fram yfirliti sem Eyjafréttir fengu hjá Gunnlaugi Grettissyni, rekstrarstjóra Herjólfs.
Árið 2010 sigldi Herjólfur eina ferð eða fleiri til Landeyjahafnar í 105 daga, þá rúmu fimm mánuði fráþví höfnin var opnuð og til áramóta. Lætur það nærri að vera 60%. Árið 2011 sigldi Herjólfur 179 daga á árinu til Landeyjahafnar, eina ferð eða fleiri. Eru það um 50% eða sem nemur hálfu ári. Svo virðist sem það ár hafi verið óvenju erfitt fyrir skipið. 2012 voru dagarnir sem Herjólfur sigldi í Landeyjahöfn 241 talsins sem eru 67% dagana í árinu. . 2013 sigldi Herjólfur 232 daga til Landeyjahafnar sem 65% og árið 2014 sigldi hann 241 dag til Landeyjahafnar sem 67%. Miðað við þessar tölur hefur Herjólfur getað siglt tvo þriðju úr ári uppí Landeyjahöfn. Aðra daga hefur hann siglt í �?orlákshöfn.
Frá því Lande yjahöfn var opnuð árið 2010, hefur Herjólfur siglt til Landeyjahafnar a.m.k. eina ferð alla mánuði árins eitthvert ár. Erfiðustu mánuðurnir eru nóvember, desember, janúar, febrúar og einnig framan af mars. Hina mánuðina hefur samkvæmt yfirliti frá rekstrarstjóra Herjólfs, fallið úr ein og ein ferð og stundum dagar, en þeir eru ekki margir.