Stellu Hauks verður minnst á Obladí Oblada í Reykjavík á morgun
Stellu Hauks verður minnst á Obladí Oblada í Reykjavík á morgun, laugardag og hefst dagskráin klukkan fjögur en staðurinn er opnaður um hádegisbil. Guðný Stella Hauksdóttir, eins og hún hét fullu nafni var fædd 17. nóvember 1953 og lést 17. janúar 2015. Hún var jarðsungin frá Landakirkju síðasta laugardag að viðstöddu fjölmenni.
�??Margir minnast Stellu með hlýhug og um hana segir Guðný Einarsdóttir í Eyjafréttum á laugardaginn: -Stella var sterkur karakter, listamaður af Guðs náð og samdi lög og texta eins og ekkert væri. Hún átti mörg frábær lög og texta eins og “Lyklabarnið” og “Taktu skítugar hendurnar þínar í burtu af mínum” og hefði mátt gefa út miklu meira af efni eftir hana. Með hjálp frábærra lista- og tónlistarmanna hélt Stella nokkra tónleika og gaf út diska og voru það draumar sem rættust fyrir henni, þökk sé þessu góða fólki. Stella var ein sú tryggasta manneskja sem ég þekki og mátti ekkert aumt sjá. Hún gerði aldrei flugu mein og stóð alltaf með þeim sem minna máttu sín í þjóðfélaginu. Hún var mikil baráttukona fyrir verkafólk og stóð föst á sínum sterku skoðunum. Stundum urðu smá skoðunarárekstrar á léttu nótunum og þá man maður eftir setningum eins og “okei þetta er þá prentvilla í blaðinu” ef hún varð að játa sig sigraða.
�?að geta margir tekið undir þetta en margir þekkja ekki lögin og textana hennar. Í þætti á R�?V fyrir skömmu fóru Andrea Jónsdóttir og Bjartmar Guðlaugsson yfir feril Stellu.

Nýjustu fréttir

Teistan siglir til Landeyjahafnar
Fyrsta framhaldsprófið í trommuleik við Tónlistarskóla Vestmannaeyja
Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.