Líflegur miðbæjarkjarni
Með tilkomu Vigtartorgsins, Baldurshaga og nú væntanlegs stórmarkaðar í Miðstræti hefur miðbæjarkjarninn okkar sjaldan verið líflegri. Bárustígur og aðliggjandi götur hýsa nú fjölbreytilega þjónustu. Götumyndin er sterk og þar setja veitingastaðir og kaffihús sinn svip. �?á eru löngu tímabærar endurbætur hafnar á Fiskiðjunni að utan og vonir standa til að þar verði stór og öflugur vinnustaður í kringum sjávarútvegs-, þekkingar- og fræðiklasann. Verið er að vinna að opnun Skólavegar niður á Strandveg. �?á er nýbúið að úthluta lóðum fyrir tvö tvíbýlishús í miðbænum. �?egar slíkar byggingar rísa í eldri hverfum þarf að gæta sérstaklega að útliti og bera virðingu fyrir því umhverfi sem fyrir er og hefur Umhverfis �??og skipulagsráð lagt áherslu á það.
Stórar byggingar rísa
Líklega hefur það ekki farið framhjá neinum að hér hafa stórar byggingar verið að rísa, t.d frystiklefi Ísfélagsins og hús á Miðstræti sem kemur til með að hýsa Bónus. �?á eru að rísa stórar fasteignir á Eiðinu, geymsluhúsnæði auk þess sem Vinnslustöðin ætlar að reisa þar frystiklefa. Umhverfis- og skipulagsráð, sem samþykkir þessar byggingar, hefur gert ríkar kröfur til útlits þessara bygginga og að umhverfisfrágangur verði með þeim hætti að sómi sé að.
Áherslur í nýju aðalskipulagi
Nú er hafin vinna við aðalskipulag Vestmannaeyja 2015-2035. Skipulagið mun gilda í 20 ár og því mikilvægt að horfa til framtíðar. Stóru verkefnin eru nýtt athafna- og iðnaðarsvæði og fjölgun nýrra íbúðarlóða. Í skipulaginu verður að taka mið af þróun byggðar og horfa þarf til breyttrar aldurssamsetningar íbúa. Áskoranirnar eru margar, en mikilvægt er að hugsa lausnamiðað gagnvart þeim verkefnum sem framundan eru.
Nýtt athafna og iðnaðarsvæði
Eitt af mest aðkallandi verkefnum sem Umhverfis- og skipulagsráð stendur frammi fyrir er að útvega lóðir til afhafna �??og iðnaðarstarfsemi en fyrir liggur að þær lóðir sem hugsaðar voru til þess eru allar komnar í notkun sem slíkar. �?flug byggð fær ekki þrifist án sterks atvinnulifs og því mikilvægt að ávallt séu í boði lóðir undir nýja og vaxandi atvinnustarfsemi og þannig sé fyrirtækjum gert kleift að vaxa og dafna í okkar góða samfélagi. Hefur ráðið meðal annars horft til svæðis á Nýja Hrauni og er skipulagsvinna við það svæði þegar hafin.
Samráð við íbúa
Eyjamenn hafa sem betur fer skoðanir á umhverfi sínu og Umhverfis �??og skipulagsmál eru mál sem snerta okkur flest. Umhverfis �??og skipulagsmál eru hópverkefni og ég kalla eftir skoðunum Eyjamanna á þessum málum, enda umræðan eingöngu til góða. Við eigum öll Vestmannaeyjar. Vinnum saman að því að gera þær enn betri.
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja �??