Strákarnir sækja ÍR-inga heim í Austurbergið í dag klukkan 18:00. Lið ÍBV var fyrsta liðið til að leggja lið ÍR af velli í fyrri umferð deildarinnar en eftir það hefur lítið gengið hjá ÍR-ingum og hafa þeir aðeins fengið eitt stig úr leikjunum átta sem á eftir komu en það stig kom í síðustu umferð þegar þeir gerðu jafntefli við Víking. ÍBV hefur líka átt á brattan að sækja en þeir hafa tapað síðustu fjórum leikjum í deildinni, því er mikið undir í kvöld hjá liðunum að koma sér aftur á sigurbraut.
Leiknum verður lýst í beinni útvarpslýsingu hjá Handboltanum í beinni og nálgast má útsendinguna
hér.