Mæta ÍR í dag
Strákarnir sækja ÍR-inga heim í Austurbergið í dag klukkan 18:00. Lið ÍBV var fyrsta liðið til að leggja lið ÍR af velli í fyrri umferð deildarinnar en eftir það hefur lítið gengið hjá ÍR-ingum og hafa þeir aðeins fengið eitt stig úr leikjunum átta sem á eftir komu en það stig kom í síðustu umferð þegar þeir gerðu jafntefli við Víking. ÍBV hefur líka átt á brattan að sækja en þeir hafa tapað síðustu fjórum leikjum í deildinni, því er mikið undir í kvöld hjá liðunum að koma sér aftur á sigurbraut.
Leiknum verður lýst í beinni útvarpslýsingu hjá Handboltanum í beinni og nálgast má útsendinguna hér.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.