�?ruggur sigur ÍBV ::Myndir
Nóg er að gera hjá strákunum okkar í handboltanum. Í kvöld mættu þeir nýliðum Víkings í Olís deild karla en þetta var annar leikur liðsins á aðeins þremur dögum. Leiknum lauk með öruggum sigri Eyjamanna, 34-28.
Jafnt var á öllum tölum framan af leik en gestirnir úr Víkinni voru fyrri til og komust tveimur mörkum yfir, 8-6, þegar Eyjamaðurinn Arnar Gauti Grettisson skoraði fyrir gestina úr hraðaupphlaupi. Eyjamenn jöfnuðu leikinn 8-8 með marki frá Degi Arnarssyni en hann átti mjög góðan leik í dag, yfirvegaður og stjórnaði sóknarleik ÍBV af festu. Eyjamenn gengu á lagið, vörnin small í gírinn og hraðarupphlaupsmörkin fylgja í kjölfarið. �?egar fyrri hálfleik lauk var staðan orðinn 18-12 fyrir ÍBV og liðið að spila vel.
Eyjamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti og juku við forskotið sitt jafnt og þétt og þegar hálfleikurinn var hálfnaður var staðan orðinn 27-18 og leikurinn í raun búinn, bara spurning hve stór sigurinn yrði. Svo fór að leiknum lauk með sex marka sigri, 34-28.
Í kvöld var allt annað að sjá til liðsins miðað við síðastliðna leiki. Leikgleði og stemmning skein frá liðinu og smitaði það út í áhorfendapalla. Einnig ber að nefna frábært framlag ungu strákana í kvöld. Dagur Arnarson og Nökkvi Dan Elliðason spiluðu frábærlega og má með sanni segja að framtíðin sé björt hjá ÍBV.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Kári Kristján Kristjáns­son 7, Nökkvi Dan Elliðason 5, Dag­ur Arn­ars­son 5, Ein­ar Sverris­son 5, Theodór Sigurbjörnsson 4, Andri Heimir Friðriksson 3, Grétar �?ór Eyþórsson 3, Brynjar Karl �?skarsson 1 og Hákon Daði Styrmisson 1.

Nýjustu fréttir

Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.