Í hádeginu gær fór fram fundur fulltrúa listamanna sem hafa dregið sig úr dagskrá �?jóðhátíðar, þjóðhátíðarnefndar og fulltrúa bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum. Á fundinum fór fram hreinskilin umræða með það að markmiði að setja niður deilur og snúa bökum saman. Ákveðið var að grípa til bæði táknrænna og raunverulegra aðgerða til að stemma stigu við nauðgunum á útihátíðum sem þessum og er þessu nánar lýst í eftirfarandi sameiginlegri yfirlýsingu aðila.
YFIRLÝSING
Nauðgun er einn versti glæpur sem manneskjur geta framið. Nauðgun getur skilið eftir sig stór sár sem fólk ber ævilangt. Allt of stór hluti þeirra sem verða fyrir nauðgun treysta sér ekki til að kæra. Af þeim nauðgunum sem eru kærðar leiða aðeins örfáar til sakfellingar. Yfirleitt vegna skorts á sönnunargögnum. Að ræða kynferðisbrot á opinskáan hátt er eitt af því sem hjálpað getur fórnarlömbum að skila skömminni þangað sem hún á heima. Skortur á umfjöllun veitir gerendum skjól til að fremja sín brot og brotin eiga sér stað víða �?? ekki bara á útihátíðum.
Aðstandendur �?jóðhátíðar í Eyjum ætla í samvinnu við bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum að efna til átaks til að vekja þjóðhátíðargesti til vitundar um alvarleika kynferðisbrota. �?jóðhátíðarnefnd mun skipa starfshóp sem marka mun stefnu til næstu 5 ára um hvernig standa megi enn betur að þessum málum á �?jóðhátíð. �?skað verður eftir aðkomu þeirra sem best þekkja, þar á meðal fulltrúa Stígamóta. Nauðganir eru vandamál sem snertir alla sem skipuleggja stórhátíðir en �?jóðhátíð hyggst ganga á undan með góðu fordæmi.
Vestmannaeyingar eru stoltir af því að eiga stærstu útihátíð landsins. Stór hluti þjóðarinnar hefur komið á þjóðhátíð Vestmannaeyja og langflestir eiga bara góðar minningar þaðan. Einstök fjölskyldustemning og náungakærleikur þjóðhátíðar, samkenndin sem birtist árlega í brekkusöngnum, gestrisni íbúa Hvítu tjaldanna; allt var þetta okkur innblástur að því að ná sátt í þessu máli.
Undirrituð vilja hvetja aðila til samstöðu gegn þeirri þjóðfélagslegu vá sem kynferðisbrot eru og nýta samstöðukraft sinn í að berjast saman. �?jóðhátíð er ekki undanskilin hvað slíkt varðar og getur gengið fram með fordæmi. �?að er krafa undirritaðra að lögregluumdæmin samræmi upplýsingagjöf hvað kynferðisbrot varðar með það að leiðarljósi að skila skömminni til þeirra sem eiga að bera hana, gerenda.
�?á má að lokum geta þess að listamenn, björgunarsveitir og aðrir gæsluaðilar á hátíðinni munu taka þátt í táknrænni athöfn vegna fyrrnefnds átaks á föstudagskvöldinu á þjóðhátíð og með því marka nýtt upphaf og vonandi eina skemmtilegustu og best heppnuðu þjóðhátíð frá upphafi.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, tónlistarmaður
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Dóra Björk Gunnarsdóttir, þjóðhátíðarnefnd
Auk eftirfarandi hljómsveita:
Agent Fresco, Dikta, Emmsjé Gauti, GKR, Retro Stefson, Sturla Atlas og �?lfur �?lfur.