ÍBV lán­ar Stephen til Frakk­lands
ÍBV hef­ur ákveðið að lána hand­knatt­leiks­markvörðinn Stephen Niel­sen til franska 1.deild­ar liðsins Aix til loka þessa árs. �?etta hef­ur mbl.is sam­kvæmt heim­ild­um og er sam­komu­lag í höfn á milli ÍBV og Stephens ann­ar­s­veg­ar og Aix hins­veg­ar. Mbl.is greinir frá.
Stephen leik­ur sinn síðasta leik að sinni með ÍBV á sunnu­dag­inn þegar ÍBV mæt­ir Ak­ur­eyri í íþróttamiðstöðinni í Vest­manna­eyj­um í 3. um­ferð Olís-deild­ar. Hann held­ur síðan til Frakk­lands til liðs við nýja sam­herja á mánu­dags­morg­un­inn.
For­ráðamenn Aix hafa leitað síðustu daga log­andi ljósi að markvörðum eft­ir að báðir markverðir liðsins meidd­ust, þar á meðal Ole Erevik, landsliðsmarkvörður Norðmanna sem slasaðist á auga á dög­un­um. Höfðu for­ráðamenn fé­lags­ins m.a. sam­band við Eyja­menn um að fá Stephen að láni.
Sam­komu­lagið milli ÍBV og Aix gild­ir til ára­móta.
Aix er eitt af liðunum í frönsku 1.deild­inni. Jón Heiðar Gunn­ars­son, leikmaður Aft­ur­eld­ing­ar, lék með liðinu um skeið fyr­ir fá­ein­um árum.
Kol­beinn Aron Ingi­bjarg­ar­son verður þar með aðal­markvörður ÍBV næstu vik­ur og mánuði en hon­um til halds og trausts verður hinn efni­legi markvörður Andri Ísak Sig­fús­son sem er ný­geng­inn upp úr þriðja flokki.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.